19.02.2018
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 09:00 SSA gola, hiti 3-6 stig og heiðskírt og verður svona veður hér í dag.
Færið er mjög gott. 5 brekkur, æfintýraleið, hólabrautir og fl og fl
Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur.
Velkomin á skíði
18.02.2018
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 07:30 sunnan gola, frost 4-7 stig og heiðskírt. Svona veður verður hér í Skarðsdalnum í dag.
Færið er troðinn þurr snjór, veður og færi er eins og það gerist bezt.
6 brekkur klárar, æfintýraleið, hólabrautir, leikjabraut og fl og fl
Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur.
Velkomin á skíði
17.02.2018
Flottir 3 dagar í Skarðsdalnum en 700 manns hafa komið í fjallið og á morgun verður sama veðurblíðan sunnan gola, frost 4-5 stig og heiðskírt.
Sjáumst hress í Skarðsdalnum
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er mjög gott sunnan gola, frost 2-3 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór, mjög gott færi í troðnum brautum.
6 brekkur klárar, æfintýraleið, hólabrautir og fl og fl.
Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur léttur og góður fyrir alla.
Velkomin á skíði
16.02.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 16:00 ASA 2-10m/sek, frostmark og heiðskírt. Það er að lægja og birta til á svæðinu.
Færið er troðinn þurr snjór. 5 brekkur klárar, æfintýraleið, hólabrautir og bobbbraut tilbúnar.
Hólsgöngubraut tilbúin kl 14:00 3 km, hringur fyrir alla.
Laugardaginn og sunnudaginn nú um helgina verður mjög gott veður.
Velkomin á skíði í dag.
15.02.2018
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er og verður austan 5-10m/sek, frostmark en alskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór.
Byrjum á að opna 2 lyftur og mögulega opnum við Búngulyftu en þar er mikil vinna á því svæði eftir rokið í gær.
Hólsgöngubraut verður tilbúin kl 14:00 3 km hringur
Velkomin á skíði
14.02.2018
Svona til upplýsinga þá fer lognið nokkuð hratt yfir núna 40,2m/sek kl 15:15
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris. Lognið fer heldur hratt í dag. Veðurútlit þegar þessum degi sleppir er gott.
Það hefur snjóað aðeins á svæðinu og erum við að vinna úr því og líta brekkur mjög vel út.
Í vetrarfríinu borgar sig að koma í Fjallabyggð, skíði, sund og veitingar, gisting á heimsmælikvarða.
Velkomin í Fjallabyggð
13.02.2018
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 15:00 ANA 5-25m/sek, hiti 2 stig en léttskýjað.
Nú fer vonandi þessi veðurkafli að taka enda. Veðurkortin líta ljómandi vel út frá næsta fimmtudegi og vel fram í næstu viku.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
12.02.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 11:00 er WSW 5-12m/sek, frost 4 stig og léttskýjað en það á að lægja og létta til þegar líður á daginn. Færið er troðinn þurr snjór, það hefur skafið aðeins nýjan snjó í brautir.
Hólsgöngubraut tilbúin kl 14:00 2 km hringur.
Velkomin á skíði
11.02.2018
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris, því miður lægir ekki vind fyrr en líður á daginn.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
10.02.2018
Það verður lokað í dag vegna veðurs og tökum við glöð á móti snjónum sem vonandi kemur í dag. Morgundagurinn lítur mjög vel út og opið verður frá kl 12:00-16:00
Nýjar upplýsingar kl 09:00 í fyrramáli.