10.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 17:00 logn, hiti 2 stig og niður í frostmark og mun kólna þegar líður á daginn og getur slyddað eða snjóað til kl 15:00.
Færið er troðinn rakur og þurr snjór í bland.
Velkomin í Skarðsdalinn
09.01.2018
Lokað í dag, en opnum á morgun kl 14:00
08.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 18:00 er logn, hitastig er frá frostmarki og niður í 3 stiga frost og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór og er mjög gott færi í troðnum brekkum.
Það hefur myndast skel í efstalagi utan við troðnar brekkur en það er betra færi yfir 500 metra hæð.
Velkomin í Skarðsdalinn
07.01.2018
Opið í dag frá kl 12-16, veðrið kl 12:00 ASA gola, frost 6 stig og léttskýjað . Færið er troðinn þurr snjór og hefur snjóað töluvert á síðasta sólahring.
Opnum Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið í dag.
Velkomin í fjallið
06.01.2018
Lokað verður í dag, það er töluverður éljagangur og mjög blint á svæðinu og verður svo í dag. Það snjóar og snjóar og nú er að myndast afar fallegt púðurfæri.
Lítur mikilu betur út á morgun og verður opnað kl 11:00 í fyrramálið.
05.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er ASA gola, frost 3-4 stig og léttskýjað.
Sama góða færið og er búið að vera síðustu 10 daga, troðinn þurr snjór og nú keyrum við 4 lyftur í dag. Skíðaleið upp á 2,4 km tilbúin.
Farið varlega fyrir utan troðnar brautir
Velkomin í Skarðsdalinn
04.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið verður mjög gott í dag ASA gola, frost 2-3 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór og er topp færi í brekkunum.
Velkomin í Skarðsdalinn
03.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er SA gola, frost 3-4 stig og heiðskírt. Sama góða færið troðinn þurr snjór.
Velkomin í Skarðsdalinn
02.01.2018
Gleðilegt nýtt skíða-ár og takk fyrir síðasta skíða-ár
Opið í dag frá kl 14-18, veðrið kl 10:30 ASA 2-6m/sek, frost 2-3 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór, mjög gott færi það hefur snjóað aðeins á síðasta sólahring.
Velkomin í Skarðsdalinn
01.01.2018
Gleðilegt nýtt skíðár með von um að það snjói heilu sköflunum.
Sjáumst hress í Skarðsdalnum á morgun kl 13:00