21.01.2018
Það er opið hjá okkur í dag frá kl 11-16. Það er glæsilegt veður, -5° hiti, 2-5m/sek WNW vindur og fullt af nýjum snjó.
World Snow Day er í dag og við bjóðum því börnum 16 ára og yngri frítt í lyfturnar og leigu á búnaði, auk þess sem við bjóðum börnunum upp á frítt kakó og súkkulaðistykki.
Einnig er göngubraut opin á Hóli.
Velkomin í fjallið!
20.01.2018
Það verður lokað í dag vegna veðurs.
Nýjar upplýsingar á morgun
19.01.2018
Það verður lokað í dag. Kl 10:00 er mjög blint á svæðinu og verður svo í dag.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00
18.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er mjög gott SSW gola, frost 5-6 stig, léttskýjað og mun birta til en meira þegar líður á daginn.
Færið er draumur troðinn harðpakkaður nýr snjór. Æfintýraleið, Bobbbraut, Hólar og fl og fl.
Göngubraut troðin á Hólssvæði 2,5 km
Velkomin í Skarðsdalinn
17.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 16:00 W-gola, frost 3-4 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn nýr snjór og er töluvert mjúkt, en það hefur snjóað um 30 sm á síðasta sólahring. Það eru drauma aðstæður í fjallinu.
Velkomin í Skarðsdalinn
15.01.2018
Það verður lokað í dag mánudaginn 15. jan og á morgun þriðjudaginn16. jan vegna veðurs og snjókomu sem við fögnum.
Nýjar upplýsingar á miðvikudaginn 17. janúar kl 10:00 en þá verður komið ljómandi veður og vonandi eitthvað af snjó í viðbót.
14.01.2018
Það verður lokað í dag vegna veðurs, nú kl 08:00 er komið SW rok 18-25m/sek
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
13.01.2018
Opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 10:00 SSW 0-6m/sek, hiti 3 stig og léttskýjað. Snjó hiti er -3. Færið er unnið harðfenni.
Byrjum á að opna kl 11:00 Neðstulyftu og T-lyftu og kl 12:00 opnum við Hálslyftu og Búngulyftu.
Velkomin í Skarðsdalinn
12.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 09:00 WSW 3-7m/sek, hiti 7 stig og léttskýjað og verður svipað veður í dag sunnan og vestan áttir og hiti, en hitinn fer lækkandi þegar líður á daginn. Daggarmark er um +1-1 gráða.
Færið er rakur snjór og mjúkt.
Svona til gamans þá fór hitinn kl 09:00 í 10 stig á Sauðanesvita
Velkomin í Skarðsdalinn
11.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, í dag er og verður sama veðurblíðan og hefur verið undanfarna daga, veðrið kl 15:30 SSW gola, hiti 1 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór en það hefur kólnað aðeins þannig að færið er harðara en hefur verið.
Velkomin í Skarðsdalinn