12.03.2017
En einn flottur dagur að baki en í dag komu 250 manns í fjallið, takk fyrir komuna í Skarðsdalinn, sjáumst hress, opnum á morgun kl 13-19
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er W gola, hiti 1 stig við skíðaskálan en frost 2 stig við sleppingu á Búngulyftu og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór.
8 skíðaleiðir eru klárar og er Æfintýraleið við Neðstulyftu og Bobbbraut við T-lyftusvæðið.
Fallegur dagur framundan í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
11.03.2017
Flottur dagur að baki en um 270 manns komu í fjallið í dag, takk fyrir komuna, sjáumst hress á morgun. Nýjar upplýsingar kl 08:00.
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 SA gola, hiti 3 stig við skíðaskála 200 metra hæð en um frostmark á Búngulyftusvæði 480 metra hæð og léttskýjað og er sú gula að koma upp. Færið er troðinn þurr snjór og eru 8 skíðaleiðir klárar.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
10.03.2017
!!!Ja nú er það flott!!!
Opið í dag frá kl 13-18:30, veðrið er mjög gott SA gola, frost 3 stig, heiðskírt og blessuð sólin verður hjá okkur í dag. Færið er troðinn þurr snjór það hefur snjóað ca 10 sm á síðasta sólahring.
8 skíðaleiðir klárar.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
09.03.2017
Kl 20:00 er 4 stiga frost, snjókoma og hefur snjóað ca 10-20 sm í dag, veðurútlit næstu dag er gott.
Sjáumst hress í Skarðsdalnum
Í dag verður lokað því nú ætlum við að taka á móti hvíta gullinu.
Kl 08:00 eru komnir 3 sm og mun koma meira fram á kvöld.
Opnum á morgun kl 13:00 í nýjum snjó með dásamlegu brekkum eins og hefur verið undanfarna 10 daga.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
08.03.2017
Opið í dag frá kl 14-19
Veðrið kl 16:00 er bara gott logn, frost 1 stig og er þoka að dansa í dalnum. Færið er harðpakkaður snjór frábært færi í mertum brautum og utanbrautarfæri er mjög gott í efrihlutanum ca 1200 metra langt. 8 skíðaleiðir klárar.
Velkomin í fjallið
Fjallamenn
07.03.2017
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er mjög gott logn, frost 2 stig og heiðskírt. Færið er harðpakkaður snjór. 8 skíðaleiðir klárar.
Velkomin í fjallið
Fjallamenn
06.03.2017
Opið í dag frá kl 11-19, veðrið er SA gola, frostmark og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Það verður flott veður og færi í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
05.03.2017
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er austan gola, frost 2 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór. það verður flottur dagur í dag í Skarðsdalnum
Æfintýraleið við Neðstasvæðið og Bobbbraut við T-lyftusvæðið.
Velkomin í dalinn góða
Starfsmenn
04.03.2017
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 er frábært logn, frost 5 stig og heiðskírt og mun sú gula koma upp kl 09:30. Færið er troðinn þurr snjór og eru 8 skíðaleiðir klárar.
Nú er topp dagur framundan.
Æfintýraleið og leikjabraut við Neðstasvæðið og Bobbbraut og leikjabraut við T-lyftusvæðið.
Mjög gott utanbrautarfæri er á Búngusvæðið og Hálslyftusvæði.
Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri í lyftur og kakó á eftir, Skíðasvæðið og Skíðafélag Siglufjarðar
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
03.03.2017
Opið í dag frá kl 13:00-18:30, veðrið er frábært og færið er frábært, það þarf ekki að segja meira logn, frost 5 stig og sól, færið er troðinn þurr snjór.
Utanbrautarfæri í efrihlutanum er meiriháttar ca 1200 metra langt.
Æfintýrabraut við neðstulyftu og Bobbbraut á T-lyftusvæði.
!!!!Skarðsdalurinn er sennilega flottasti dalur í heimi í dag, þetta segir fólkið!!!!
Velkomin í fjallið
Fjallamenn