Laugardaginn 4. febrúar opið 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 er frábært logn, frost 5 stig og heiðskírt og mun sú gula koma upp kl 09:30. Færið er troðinn þurr snjór og eru 8 skíðaleiðir klárar.

Nú er topp dagur framundan.

Æfintýraleið og leikjabraut við Neðstasvæðið og Bobbbraut og leikjabraut við T-lyftusvæðið.

Mjög gott utanbrautarfæri er á Búngusvæðið og Hálslyftusvæði.


Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri í lyftur og kakó á eftir, Skíðasvæðið og Skíðafélag Siglufjarðar


Velkomin í Skarðsdalinn

Starfsmenn