22.03.2013
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 13:00 austan 4-10m/sek, hiti 2 stig en alskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
21.03.2013
Ja Norðmennirnir spá því að veðrið í Skarðsdalnum verði mjög gott næstu 9 daga, svo að nú eiga skíðamenn
að taka stefnuna í Fjallabyggð.
Það verður opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 16:30 A 5-10m/sek, frost 1 stig og það er að birta mikið til á svæðinu,
þetta gula er að koma upp.. Færið er troðinn nýr þurr snjór.
Skarðsdalurinn er frábær í dag, nýr snjór, logn og blíða.
Ath. komandi helgi fellur niður skíðakennsla.
Hér til hægri eru veður upplýsingar í rauntíma.
Skoðið hér til hægri nýlegt myndband.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
20.03.2013
kl 13:00 Það verður lokað í dag vegna vinnu á svæðinu. Opnum á morgun kl 14:00.
Starfsmenn.
Jæja nú er veðrið gengið niður og komin veður-blíða, erum að skoða aðstæður og vinna í fjallinu og vonandi getum við
opnað í dag kl 15:00. Veðurútlit næstu dag er mjög gott svo nú er um að gera að taka á því í fjallinu. Snjóalög
eru mjög góð í öllum brekkum.
Páskafjör
Opnunartími í dymbilviku 25/3-27/3 kl 13-19 og 28/3-1/4 kl 10-16
Skíðakennsla, leikjabraut, giljabraut, pallar, hólar og fl. fl. Og að sjálfsögðu frábærar brekkur. 4 lyftur, 10 brekkur, langar og
stuttar.
Nýjar fréttir kl 13:00 í dag
Starfsmenn
19.03.2013
Það er lokað í dag þriðjudaginn 19. mars en við opnum aftur á morgun miðvikudaginn 20. mars kl 15-19
Nýjar upplýsingar kl 12:00
Starfsmenn
18.03.2013
Opnum aftur á miðvikudaginn 20. mars
!!Páskafjör!! hér í Skarðsdalnum. Það kemur dagskrá og auglýsing mjög fljótt í þessari viku. Opið verður
Páskavikunni 24/3-27/3 kl 13-19 og 28/3-1/4 kl 10-16.
Ath. það er nægt gistinrými í Fjallabyggð Hótel, Gistiheimili, sumarhús og íbúðir, sennilega er hægt að hýsa
um 400-500 manns á öllum þessum stöðum.
Ath. skíðagestir góðir það eru 2 íbúðir lausa hjá Leigumiðlun Valló um Páska og endilega að skoða inn
á siglo.is og síðan inn á ferðafólk þar er möguleiki á að finna gistingu og svo eru fleiri staðir bæði á
Siglufirði og Ólafsfirði.
Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 14:00 NA gola, frost 5 stig og sú gula er komin..
Færið er troðinn þurr snjór.
Snjódýpt í brekkum er mjög góð.
Neðstasvæðið er 70-150cm
T-lyftusvæði er 70-250cm
Búngusvæði 350-500cm
Göngubraut á Hólssvæði ca 4 km hringur.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
17.03.2013
Veðurútlit er mjög gott fyrir daginn: Hæg norðaustanátt og léttir til. Frost 1 til 8 stig. Spá gerð: 17.03.2013 06:21. Gildir til:
18.03.2013 18:00.
Ath. það er púður á Búngusvæði ca 10-15cm.
Í dag verður opið frá kl 10-16 og er veðrið mjög gott kl 10:25 ANA 2-6m/sek, frost 9 stig, léttskýjað og sólin að brjótast fram.
Færið er troðinn þurr snjór og er snjórinn orðinn harðpakkaður.
Flott veður og frábært færi.
Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur léttur og góður fyrir alla.
Skiptihelgi í gangi fyrir vetrarkortshafa á norðurlandi.
Skíðakennsla hefst kl 11:00, koma í afgreiðslu eða panta tíma í síma 893-5059.
Velkomin út og á skíði
Starfsmenn
16.03.2013
Í dag laugardaginn verður skíðasvæðið opið frá kl 10-16 og er færið troðinn þurr snjór, veðrið kl 14:00 ANA
2-4m/sek, frost 6 stig og léttskýjað. Aðstæður eru mjög góðar í dag.
Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur tilbúinn kl 13:00.
Minni á skíðakennslu sem er um helgar og byrjar kl 11:00 báða daga, kennari er Salóme Rut Kjartansdóttir. Hægt er að panta tíma
í síma 893-5059 Egill Rögg. Verð per 1/2 tíma er kr 1.500.- per einstakling.
Skiptihelgi er nú í gangi laugardaginn 16 mars og sunnudaginn 17. mars fyrir vetrarkortshafa, endilega að nýta ykkur þennan
möguleika til að skoða önnur skíðasvæði norðanlans.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
15.03.2013
Það lítur mjög vel út með veður um helginna í Skarðsdalnum, opnum báða daga kl 10-16. !!S s frábært veður og
frábært færi!! nýr snjór í öllum brekkum. Sjáumst hress á morgun.
Það verður opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 13:00 ANA 5-10m7sek, frost 4 stig og lítils háttar éljagangur. Miðað við
veðurspá á að létta til þegar líður á daginn. Færið er troðinn nýr snjór, frábært færi.
Skiptihelgi framundan (16-17 mars)
Minni á skíðakennslu sem er um helgar og byrjar kl 11:00 báða daga, kennari er Salóme Rut Kjartansdóttir. Hægt er að panta tíma
í síma 893-5059 Egill Rögg. Verð per 1/2 tíma er kr 1.500.- per einstakling.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
14.03.2013
Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 12:00 vestan gola, frost 1 stig, heiðskírt og sólin að sýna sig. Færið er troðinn þurr
snjór. Frábært veður enn betra færi.
Skiptuhelgi 16 og 17 mars.
Þá er komið að skiptihelgi skíðasvæðana á norðurlandi. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í
Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi.
Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá
þá afhenta lyftumiða. Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að
heimsækja nágrannana.
Áhugasamur einstaklingur, mig vantar brettakennara um helgar fram á vor og sérstaklega í Páskavikunni. Egill Rögg s.
893-5059.
Skíðakennsla verður í fjallinu um helgar í vetur og byrjar kennslan kl 11:00 bæðið laugardaga og sunnudaga, þessi kennsla er bæði
fyrir byrjendur og lengra komna. Gjaldið er 1.500.- per mann í 1/2 tíma en kennarinn getur tekið 2 nemendur á hverjum 1/2 tíma. Kennari er Salóme Rut
Kjartansdóttir og er hún með kennsluréttindi.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
13.03.2013
Í dag miðvikudaginn 13. mars verður opið frá kl 15-19. Veðrið kl 13:10 logn, hiti 1 stig og lítilsháttar éljagangur. Færið er
troðinn nýr blautur snjór en undir er harðfenni.
Áhugasamur einstaklingur, mig vantar brettakennara um helgar fram á vor og sérstaklega í Páskavikunni. Egill Rögg s. 893-5059.
Skíðakennsla verður í fjallinu um helgar í vetur og byrjar kennslan kl 11:00 bæðið laugardaga og sunnudaga, þessi kennsla er bæði
fyrir byrjendur og lengra komna. Gjaldið er 1.500.- per mann í 1/2 tíma en kennarinn getur tekið 2 nemendur á hverjum 1/2 tíma. Kennari er Salóme Rut
Kjartansdóttir og er hún með kennsluréttindi.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn