Skiptuhelgi 16 og 17 mars.
Þá er komið að skiptihelgi skíðasvæðana á norðurlandi. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi. Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða. Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja nágrannana.
Áhugasamur einstaklingur, mig vantar brettakennara um helgar fram á vor og sérstaklega í Páskavikunni. Egill Rögg s. 893-5059.
Skíðakennsla verður í fjallinu um helgar í vetur og byrjar kennslan kl 11:00 bæðið laugardaga og sunnudaga, þessi kennsla er bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Gjaldið er 1.500.- per mann í 1/2 tíma en kennarinn getur tekið 2 nemendur á hverjum 1/2 tíma. Kennari er Salóme Rut Kjartansdóttir og er hún með kennsluréttindi.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn