18.01.2012
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, veðrið kl 15:30 SV 5-20m/sek, frost 3 stig og er töluverður éljagangur og
skafrenningur. Það jákvæða er að það bætir á snjóinn næsta sólahringinn.
Opnum á morgun kl 16-20, nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun.
Starfsmenn
17.01.2012
Skíðasvæðið er lokað í dag, opnum aftur á morgun miðvikudaginn 18. janúar kl 16-20.
Nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun.
Starfsmenn
Munum eftir þessum degi
SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD - komum börnunum í snjóinn - sunnudagurinn 22. janúar 2012
Frítt fyrir alla
Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir
sérstökum degi „World Snow Day“ þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á nýjungum í því
augnamiði að hvetja börn til skíðaiðkunar. Dagurinn er hluti hvatningarátaks FIS „Bring children to the snow“ sem staðið hefur frá
árinu 2007.
Stjórn Skíðasambands Íslands hefur
ákveðið að svara kalli FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og
skíðasvæðanna. Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga bönum og unglingum sem heimsækja
fjöllin.
Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin
í fjöllin og njóta þar hollrar útivstar í hreinleika fjallanna.
Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ,
skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum ókeypis á
skíði þennan dag.
16.01.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 11:45 WSW gola, hiti 4 stig og léttskýjað, færið er
troðin þurr og rakur snjór í bland en mjög gott færi fyrir alla.
Göngubraut er á Hólssvæði ca 2,5 km, brautin er létt og góð fyrir alla.
Velkomin á skíði starfsfólk.
Sjá hér að ofan hvaða svæði eru opin, grænt er opið en rautt er lokað svæði.
15.01.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 11:00 vestan gola, frostmark og heiðskírt, færði er
troðinn nýr snjór í bland við rakan.
Sjá hér að ofan hvað svæði eru opinn í dag.
Á skíðasvæðinu í gær voru um 300 manns takk fyrir komuna.
Göngubraut er á Hólssvæði ca 2,5 km tilbúinn kl 10:00
Velkomin á skíða í dag, starfsmenn
14.01.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 12-16, veðrið kl 10:00 vestan gola, hiti 2 stig, rigning og þoka.
Það er töluvert erfitt að vinna brekkur í þessu veðri þegar hiti og rigning fara saman. Færið er mjög blaut. Neðstasvæði
opnaði kl 12 og T-lyftusvæði verður opnað kl 13
Byrjendakennsla verður við skíðaskálan í dag.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
13.01.2012
Lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 15:15 SSW 2-20m/sek, hiti 10 stig og heiðskírt. Byrjendakennsla verður við
skíðaskálan í dag.
Opnum á morgun kl 10-16, nýjar upplýsingar kl 08:00
Veðurspá í dag og á morgun.
Sunnan 10-18 m/s. Lægir í nótt, en hvessir aftur um tíma í fyrramálið. Rigning með köflum, en
úrkomulítið síðdegis á morgun. Hiti 3 til 8 stig, en kólnar eftir hádegi á morgun.
Spá gerð: 13.01.2012 12:24. Gildir til: 15.01.2012 00:00.
Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km mjög létt braut. Hún er að hluta til í ljósum.
Nýjar upplýsingar kl 15:00
12.01.2012
Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 16-20, veðrið kl 13:00 SW 2-4m/sek, frost 3 stig og heiðskírt mjög gott veður,
færið er troðinn nýr snjór frábært færi fyrir alla.
Ath. Þvergilsleið á T-lyftusvæði er lokuð og Innrileið á Búngusvæði er lokuð. Vinsamlega skíðið í
troðnum brautum og virðið þessar lokanir.
Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km mjög létt braut. Hún er að hluta til í ljósum.
Velkominn í fjallið starfsmenn
11.01.2012
Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 16-20, veðrið kl 14:00 SW 7-11m/sek, frost 4 stig en heiðskírt, það er
töluverð vindkæling svo það er um að gera að búa sig vel. Sjá hér að að ofan hvaða svæði eru opin.
Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km mjög létt braut.Hún er að hlutatil í ljósum.
Veðruspá dagsins:
Norðvestan 3-8 m/s og skýjað með köflum, en stöku él úti við sjóinn. Hægviðri og
léttskýjað á morgun. Frost 1 til 8 stig.
Spá gerð: 11.01.2012 10:26. Gildir til: 13.01.2012 00:00.
Velkomin í fjallið starfsmenn
10.01.2012
Í dag þriðjudaginn 10. janúar hefur verið töluvert hvast á skíðasvæðinu, tvær sterkar hviður hafa komið fram á
vindmælir önnur var 40,2m/sek kl 04:33 og hin var 46.9m/sek kl 15:05 svona getur SW áttin verði grimm við okkur.
Opnum á morgun kl 16-20.
Nýjar upplýsingar kl 12:00
Starfsmenn
09.01.2012
Kl 17:00 er komið logn, 2 stiga frost og heiðskírt. Færið er frábært.
Opnum næst á miðvikudaginn 11. janúar kl 16-20, nýjar upplýsingar á miðvikudaginn kl 12:00
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 14:00 SSV 2-14m/sek, frost 1 stig og léttskýjað, samkvæmt
veðurspá í dag á að lægja seinni partinn, færið er harðfenni.
Opnum Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið
Starfsmenn