Fréttir

Laugardaginn 11. janúar lokað í dag vegna hvassviðris

Lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 12:00 SW 2-25m/sek, frost 1 stig og töluverður skafrenningur. Göngubraut verður tilbúin kl 13:00 3,5 km á Hóssvæði, létt og góð braut fyrir alla. Það má búast við því að sporið haldist illa. Opnum á morgun kl 10-16. Nýjar upplýsingar kl 08:30 Fróðleiksmoli dagsins: http://hvanneyri.com/index.htm Starfsmenn

Föstudaginn 10. febrúar lokað í dag vegna hvassviðris.

Skíðasvæðið verður lokað í dag, veðrið kl 15:00 SV 6-20m/sek og töluverður  skafrenningur. Göngubraut á Hólssvæði tilbúin kl 10:00 3,5 km létt og góð braut fyrir alla. Opnum á morgun kl 11-16, nýjar upplýsingar kl 09:00 Starfsmenn

Fimmtudaginn 9. febrúar opið kl 16-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 13:00 WNW gola, 0 stig og léttskýjað. Færið er troðinn nýr snjór og harðfenni undir, það hefur snjóða ca 5-10 cm á svæðinu. Göngubraut er á Hólssvæði 3,5 km létt góð braut fyrir alla. Velkomin á skíði í dag, starfsmenn Smá fróðleiksmoli: http://www.travelnet.is/ghi/isl/journey/sv_nl/siglufjordur.htm  

Miðvikudaginn 8. febrúar opið kl 16-20

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-20, veðrið kl 15:00 SSA 2-6m/sek, hiti 2 stig og heiðskírt. Það á lægja þegar líður á daginn. Færið er unnið harðfenni. Ég vil minna ykkur á skíðamenn góðir á töfluna hér að ofan um hvaða svæði eru opin og er hún uppfært um leið og eitthvað breytist. Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði kl 15:00 3,5 km Velkomin á skíði Starfsmenn

Þriðjudaginn 7. febrúar er lokað

Skíðasvæðið er lokað í dag, opnum á morgun miðvikudaginn 8. febrúar kl 16-20. Nýjar upplýsingar kl 12:00 Starfsmenn  

Mánudaginn 6. febrúar opið kl 15-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 11:00 SW 4-10m/sek, hiti 12 stig og léttskýjað, færið er troðinn rakur snjór. Nýtt!! Nýtt !! Nú getur þú/þið komið við í Olís bensínstöð á Siglufirði og keypt dagslyftumiða. Göngubraut á Hólssvæði 3,5 km létt og góð braut fyrir alla. Velkomin á skíði í dag Starfsmenn  

Sunnudaginn 5. febrúar opið kl 10-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:00 SV 3-11m/sek, frost 3 stig og heiðskírt. Færið er troðinn nýr snjór, það hefur snjóað ca 10 cm í brekkurnar. Á svæðinu eru pallar, bobbbbraut, reil, hólabraut og fl, þessi svæði eru á T-lyftusvæði, Þvergili og á Neðstasvæðinu. Farið varlega svo engin meiðist. Göngubraut á Hólssvæði tilbúinn kl 10:00 hún er ca 3,5 km. á göngusvæðinu er sunnan gola, frost 1 stig og heiðskírt. Nýr snjór í spori. Velkomin á skíði gott skíðafólk Starfsmenn

Laugardaginn 4. febrúar opið kl 10-16

í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 austan gola, hiti 1 stig og heiðskírt. Færið er unnið harðfenni. Hólabrautir, bobbbraut, pallar og fl í Skarðsdalnum. Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði kl 10:00 3,5 km. Hér í dag fer fram heljar mikil brettahátið, á T-lyftysvæði er stórir og miklir stökkpallar og við Neðstasvæðið eru pallar,hólar,reil og fl og munu sýningar fara fram á báðum þessum stöðum. Velkominn á skíði í dag í veður blíðuna. Starfsmenn

Föstudaginn 3. febrúar opið kl 11-19

Skíðasvæði verður opið í dag frá kl 11-19, veðrið kl 17:00 SV 2-6m/sek, hiti 2 stig og heiðskírt. Færið er troðinn nýr snjór í bland við rakan, það er töluvert hart. Búngusvæði opnar kl 16:00 Göngubraut á Hólssvæði 3,5 km tilbúinn kl 13:00 Hér um helginna fer fram mikil brettahátið og stefnir í að fjöldi gesta komi á svæðið um helginna Velkomin á skíði Starfsmenn  

Fimmtudaginn 2. febrúar opið kl 11-20

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-20, veðrið kl 09:00 VSV 2-6m/sek, frost 1 stig og heiðskírt, færið er troðinn nýr snjór og harðfenni í bland. Búngulyfta opnar kl 16:00 Pallar, hólabrautir, bobbbraut og fl. Göngubraut verður tilbúinn á Hólssvæði kl 14:00 3,5  km. Velkomin á skíði í dag Starfsmenn Hér um helginna fer fram mikil brettahátið og stefnir í að fjöldi gesta komi á svæðið.