20.12.2011
Skíðasvæðið er lokað í dag, opnum aftur á morgun miðvikudaginn 21. desember kl 16-20.
Nýjar upplýsingar kl 14:00 á morgun
Minni á vetrarkortasölunna, það borgar sig að kaupa vetarkort, sjá gjaldskrá hér að neðan.
Vetrarkortasala í fullum gangi 2011-2012:
Barnakort 8-18 ára
Kr. 7.000.-
Fullorðnir
Kr.
15.000.-
Hjónakort
Kr. 28.000.-
Ef keypt eru fleiri en 2 kort, er 10% afstáttur af 3 korti og 15% af 4 korti eða fleirum
19.12.2011
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 15:30 er SV 6-13m/sek, 1 stigs frost en alskýjað,
færið er mjög gott, góður snjór í öllum brekkum sem eru opnar í dag, sjá hér að ofan.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
Veðurspá næstu daga, það er kuldi í kortunum, þar með mun færið haldast mjög gott.
http://www.yr.no/sted/Island/Nor%C3%B0urland_Eystra/Skar%C3%B0sdalur~2627003/langtidsvarsel.html
Opnunartími um hátíðarnar.
18.12.2011
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 11:15 vestan gola, frost 2 stig og heiðskírt, færið er
troðinn nýr snjór, silkifæri í öllum brekkum.
Velkomin í fjallið starfsmenn
Fróðleiksmoli dagsins: Grænland
http://is.wikipedia.org/wiki/Gr%C3%A6nland
17.12.2011
Kl 12:00 opið í dag frá kl 12-16. Sjá veðrið hér til hægri á síðu Veðurstöð.
Kl 10:00 Opnun seinkað um klst til kl 12-16, það er mjög dimmt snjóél að ganga yfir núna.
Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 09:00 SV 4-8m/sek, frost 3 stig, éljagangur og alskýjað, færið er
mjög gott fyrir alla nýr snjór í brautum.
Veðurspá dagsins:
Suðvestan 5-10 m/s, en hægari norðlæg átt í kvöld. Lítilsháttar él. Suðaustan 8-15 eftir hádegi
á morgun og dálítil snjókoma eða jafnvel slydda. Frost 2 til 8 stig, en hlýnandi á morgun.
Spá gerð: 17.12.2011 06:38. Gildir til: 18.12.2011 18:00.
Velkomin í fjallið starfsmenn
Fróðleiksmoli dagsins:
Úr Siglufjarðarbyggðum
BÆKUR Sagnfræði SIGLFIRSKUR ANNÁLL
Þ. Ragnar Jónasson tók saman. Vaka-Helgafell, 1998, 317 bls. ÞETTA er þriðja rit sama höfundar á jafnmörgum árum um
Siglufjarðarbyggðir. Árið 1996 kom út bókin Siglfirskar þjóðsögur og sagnir og á síðasta ári Siglfirskir
söguþættir. Nú er það annáll, allt frá landnámsöld og til þessa árs.
Úr Siglufjarðarbyggðum
BÆKUR
Sagnfræði
SIGLFIRSKUR ANNÁLL
Þ. Ragnar Jónasson tók saman. Vaka-Helgafell, 1998, 317 bls.
ÞETTA er þriðja rit sama höfundar á jafnmörgum árum um Siglufjarðarbyggðir. Árið 1996 kom út bókin Siglfirskar
þjóðsögur og sagnir og á síðasta ári Siglfirskir söguþættir. Nú er það annáll, allt frá
landnámsöld og til þessa árs. Ekki getur það dulist neinum að á bak við verk sem þetta hlýtur að liggja áratuga langt
grúsk í heimildum og kerfisbundin söfnun.
Frameftir öldum er raunar fátt að frétta af "þessum afskekktu útkjálkadölum", eins og það eitt sinn var orðað. Það eru
helst frásagnir af slysförum, en þær voru æði margar. Þessir miklu sægarpar við ysta haf þurftu að greiða háan toll af
lífsbaráttu sinni. Og þá voru snjóflóðin frek á mannslíf og mannvirki. Þá komu einnig til sögunnar margvísleg
afskipti kirkjunnar - eða öllu heldur Hólabiskupa - sem hvarvetna seildust til yfirráða þar sem einhverja matarholu var að fá eða viðareka af
sjó. Mér virðist höfundur tíunda þetta allt vandlega eftir því sem heimildir hrökkva til. Þegar nær dregur nútímanum
verða heimildir að sjálfsögðu mun fleiri og að lokum má segja að mestur vandinn sé að velja og hafna. Siglufjörður verður á
tímabili miðpunktur athafnalífs á Íslandi og þar gerast því margir hlutir. Þá má vera að sumum sem vel þekkja til
finnist eitthvað verða útundan, þó að utanhéraðsmaður sjái það ekki. En ég fæ þó ekki betur séð en
alls jafnvægis sé gætt.
Annáll þessi skiptist í allmarga kafla. Sá fyrsti nær yfir tímabilið 874-1550 og er aðeins fimm blaðsíður. Síðan kemur kafli
um tímabilið 1551-1700 og er hann örlítið lengri eða átta bls. Svo fara kaflarnir að lengjast jafnt og þétt og styttri tímabil tekin
fyrir í hverjum kafla, 1701-1800, 14 bls., 1801-1850, 16 bls., 1851-1900, 31 bls., 1901- 1910, 9 bls., 1911-1920, 19 bls., 1921-1930, 20 bls., 1931-1940, 41 bls., 1941-1950, 20 bls., 1951-
1960, 14 bls., 1961-1970, 25 bls., 1971-1980, 19 bls., 1981-1990, 16 bls., og loks 1991-1998, 20 bls. Það er því rúmlega helmingur bókarinnar sem fjallar um
tuttugustu öldina eina og er það að vonum.
Í bókarlok er allmikil heimildaskrá eins og ætla má, Nafnaskrá, Staðanöfn og að lokum er skrá yfir helstu atburði og atriði,
flokkuð eftir efnissviðum. Er að því gott hagræði.
Höfundurinn hefur með þessum ritum sínum bætt drjúgum við sagnaritun heimabyggðar sinnar, sem menn mega vissulega vera honum þakklátir
fyrir.
Eins og fyrri bækur þessa ritsafns er þessi bók einkar fallega útgefin og öllum þeim til mikils sóma sem að henni standa.
Sigurjón Björnsson
Þ. Ragnar
Jónasson
16.12.2011
Skíðasvæði verður opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 12:30 ASA 2-5m/sek, frost 4 stig og léttskýjað, færið er
troðinn nýr snjór mjög gott færi fyrir alla.
Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið verða opin í dag.
Velkomin í fjallið starfsmenn
Fjáröflun hjá Skíðafélagi Siglufjarðar http://skisigl.fjallabyggd.is/forsida/
15.12.2011
Kl 14:30 Það verður lokað í dag vegna veðurs, nú á svæðinu er ANA 5-10m/sek, mjög blint og skafrenningur og er
vindur vaxandi.
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 16-20, veðrið kl 10:30 ANA 3-7m/sek, frost 5 stig, smá éljagangur og
alskýjað. Færið er troðinn nýr snjór, mjög gott færi fyrir alla.
Neðstasvæðið og T-lyftusvæði verða opin í dag.
Nýtt!! Nýtt!!
Fyrirtækjavetrarkort: 20 þúsund per stk
5.stk 10% afsláttur, 6-10 stk 15% afsláttur og 10 eða fleiri 20% afsláttur.
Þessi vetrarkort nýtast á milli starfsfólks.
Veðurspá næstu daga:
http://www.yr.no/sted/Island/Nor%C3%B0urland_Eystra/Skar%C3%B0sdalur~2627003/
Velkomin í fjallið starfsfólk
14.12.2011
Skíðasvæðið kl 15:00 það verður lokað í dag vegna veðurs, veðrið NA 12-17m/sek, frost 2 stig og töluverður skafrenningur.
Opnum á morgun kl 16, nýjar upplýsingar um kl 11:30.
Starfsmenn
Opnun í dag er í skoðun, nýjar upplýsingar kl 15:00.
Veðrið kl 11:30 NA-15-21m/sek, frost 2 stig og töluverður skafrenningur.
Starfsmenn
12.12.2011
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegan veðurs, veðrið kl 14:00 er NA10-15m/sek, frost 1 stig, éljagangur og töluverður
skafrenningur.
Næsta opnun er á miðvikudaginn 14. desember.
Starfsmenn
11.12.2011
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs kl 08:30 er austan 10-20m/sek, hiti 3 stig, svona eru andstæðurnar í veðrinu
í gærmorgun kl 06:00 var 10 stiga frost.
Það verður opið á morgun, nýjar upplýsingar kl 13:00 á morgun.
Starfsmenn
10.12.2011
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 10:30 VSV 2-4m/sek, frost 9 stig og heiðskírt, færið er
troðinn nýr snjór mjög gott færi fyrir alla.
Byrjum á að opna Neðstu-lyftu og T-lyftu, vonandi getum við opnað Búngu-lyftu upp úr hádeginu.
Minni á vetrarkortasöluna, hún er í fullum gangi, hikið ekki við að senda tölvupóst egillrogg@simnet.is og eða hringja í síma 893-5059 öll vetrarkort hækka eftir 10. desember samkvæmt
verðskrá.
Hjónakort kr 25.000.-
þú sparar kr 5.000.-
Einstaklingskort kr 13.000.- þú sparar kr 2.000.-
Barnakort 9-18 ára kr 3.000.- þú sparar kr 4.000.-
Framhaldsskólanemar 19+ kr 7.000.- þú sparar kr 8.000.-
Háskólanemar kr 7.000.- þú sparar kr 8.000.-
Börn 8 ára og yngri fá fríkort
Einnig gildir þetta tilboð fyrir þá sem eiga í Fjallabyggð svokölluð frístiundahús, nú er um að gera að drífa sig
í því að kaup vetrarkort, tilboð þetta gildir til 10. desember en eftir það hækka öll verð samkvæmt verðskrá.
Velkomin í fjallið starfsmenn