22.03.2010
Skíðasvæðið er lokað í dag vegna veðurs. það er hvass ANA vindur á svæðinu, við stefnum á að opna
svæðið á morgun kl 15-19 ef veður verður í lagi. Nýjar upplýsingar um kl 12:00 á morgun.
Starfsfólk skíðasvæðisins
21.03.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 A 4-8m/sek, frost um 3 stig og léttskýjað, færið er
troðinn þurr snjór frábært færi fyrir alla, í dag fer fram Unglingameistarmótið á skíðum, keppni hefst með svigi 13-14
ára kl 09:00 og svo er haldið áfram fram eftir degi , 15-16 um kl 12:30, göngukeppni hefst kl 11:00, það eru um 130 keppendur Unglingameistarmótinu og svo
eru um 200-300 manns á skíðum við frábærar aðstæður.
Velkomin í fjallið.
Starfsfólk
20.03.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið er logn, frost 4 stig og alskýjað, færið er troðinn nýr
snjór á öllu svæðinu frábært færi fyrir alla, allar lyftur keyrðar.
Göngubraut verður tilbúinn sunnan við Skógrækt kl 14 og keppnisbraut í Skarðsdalsbotni kl 10:00.
Keppni á UMÍ í stórsvigi drengja og stúlkna í 15-16 ára flokki hefst kl 09:45 og keppni í göngu hefst kl 11:00
Velkomin í fjallið
Starfsfólk
19.03.2010
Það verður lokað í dag vegna veðurs, það er NA 10-12m/sek og meira í hviðum, töluverður éljagangur og skafrenningur er á
svæðinu, nýjar fréttir um kl 08:00 á morgun. Það lítur vel út með veður næstu 2 daga, spáin er austlæg
átt.
Kepppni fór fram í göngu í dag á UMÍ með heðbundinni aðferð sunnan við Skógræktina og gekk mjög vel. Á
morgun verður keppt í stórsvigi og göngu með frjáls aðferð.
Ps. það er nægt pláss fyrir alla til að skíða og nægur snjór.
Starfsmenn
18.03.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 10:00 logn, um frostmark og það er að létta til,
færið er troðinn nýr snjór, við setjum í gang kl 13:00 Neðstu-lyftu og T-lyftu, og vonandi getum við sett Búngu-lyftu í gang kl 15:00.
Það verður farið að vinna í göngubraut í Skarðsdalsbotni um kl 15:00
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
17.03.2010
Skíðasvæðið er lokað í dag vegna veðurs veðrið er ekki gott ANA 10-16m/sek og meira í hviðum. Við stefnum á að opna
á morgun kl 13:00 og þá opnum við fyrst til að byrja með Neðstu-lyftu og T-lyftu og um kl 15.00 Búngusvæðið.
Nýjar upplýsingar um kl 15:30.
Velkomin í fjallið starfsmenn
16.03.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-18, veðrið er logn, hiti um 2 stig og alskýjað, færið er ágætt
það hefur harnað aðeins það var frost í nótt, við keyrum eingöngu Neðstu-lyftu og T-lyftu. Það er verið að vinna
Búngusvæði og gera það klárt fyrir næstu dag, nægur snjór á svæðinu.
Unglingameistarmótið mun fara hér fram um næstu helgi.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
15.03.2010
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, á svæðinu núna kl 12:00 er SV 8-10m/sek og meira í hviðum og
töluverð úrkoma bæði slydda og éljagangur á Búngusvæði. Nýjar fréttir á morgun um kl 12.00
Starfsmenn
14.03.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið er logn, frost 1 stig, smá élgagangur og
alskýjað, ábending það er töluverð blinda, færið er troðinn nýr snjór, allar lyftur keyrðar, nú er um að
gera að drífa sig á skíði og njóta dagsins.
Velkomin í fjallið starfsmenn