09.04.2017
Opið í dag frá kl 10-16.
Veðrið kl 08:00 WNW 2-5m/sek, lítilsháttar éljagangur og er 4 stiga frost.
Færið er troðinn nýr þurr snjór en það hefur snjóað 10-15 sm á síðasta sólahring.
Það liggur ekki fyrir hvort það verður opnaðar fleiri lyftur í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
08.04.2017
Það verður lokað í dag, veðuraðstæður eru ekki góðar rigning, slydda og verður ANA 10-15m/sek í dag, en það á að kólna og snjóa þegar líður á daginn.
Morgundagurinn lítur vel út, nýjar upplýsingar á morgun kl 08.00
Starfsmenn
07.04.2017
Opið í dag frá kl 13:00-18:30
Veðrið er austan gola, hiti 4 stig og léttskýjað. Færið er troðinn nýr blautur snjór og er töluvert mjúkt færi. Það hefur snjóað á svæðinu nú í þessari viku 40-60sm.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
06.04.2017
Það verður lokað í dag vegna aðstæðna, það er mikill nýr snjór og slydda og ekki hægt að troða svo gott verði. Skyggnið er mjög lítið.
Nýjar upplýsingar á morgun
05.04.2017
Opið í dag frá kl 15-19.
Veðrið er austan gola, frost 1 stig en alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og er mjög mjúkt færi, það snjóaði ca 20-40 sm í gær, þannig að nú klárum við veturinn með breiðum og flottum brekku eins og verið hefur síðurstu 50 daga.
Opnum eingöngu 2 lyftur í dag, en á efri svæðunum tveimur eigum við eftir töluvert mikla vinnu til að koma þeim í gang.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
04.04.2017
Það verður lokaðí dag vegna veðurs og nú erum við að taka á móti hvíta gullinu.
Veðrið kl 09:30 NNV 10-15m/sek, frost 3 stig og snjókoma.
Nýjar upplýsingar á morgun
Starfsmenn
03.04.2017
Það er lokað í dag, það er of mikill hiti og það mun rigna í dag. Það er ekki hægt að vinna brekkurnar við þessar aðstæður.
En tökum gleði okkar því nú er að koma vetur hér fyrir norðan frosthörkur og snjókoma og allir fagna því.
Í veðurkortunum er snjókoma alla vikuna. !!Frábært!!
Fylgist með okkur, nýjar upplýsingar á morgun
Starfsmenn
02.04.2017
Opið í dag frá kl 10-16
Veðrið kl 08:00 er logn, frost 2 stig en það er alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór, það hefur stirnað aðeins þannig að færið er mun betra en í gær og er góður snjór í öllum brekkum.
Opnum 3 lyftur í dag og eru 5 skíðaleiðir klárar.
Velkomin í dalinn góða
01.04.2017
Skíðasvæðið mun opna á morgun kl 10 og takið daginn snemma
Opið í dag frá kl 10-16.
Veðrið kl 12:30 logn, hiti 3 stig, éljagangur og er þoka í efrihlutanum á svæðinu.
Færið er vorfæri og er mjög mjúkt en er betra eftir því sem ofar kemur.
!!Nú er bezt að vera á breiðum skíðum eða bretti!!
Velkomin í Skarðsdalinn