20.04.2016
Opið í dag frá kl 14-18. Veðrið kl 09:00 WNW 5-12m/sek en það er hvassara á toppnum, hiti 2 stig og léttskýjað, færið er troðinn blautur snjór.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
19.04.2016
Lokað í dag, opnum á morgun. Nýjar upplýsingar kl 10:00 á morgun miðvikudaginn 20. apríl.
Minni ykkur á skíðagestir góðir að svæðið verður opið til 1. maí og tvær helgar í maí 5-8. maí Super Troll og 14-15. maí Skarðsrennsli.
Sjáumst hress
18.04.2016
Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 14:45 logn, frost 2 stig og éljagangur og er skyggnið nokkuð erfitt en það á að minka úrkoman seinnipartinn, færið er troðinn nýr snjór en það hefur snjóað ca 20 cm.
Opnum Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
17.04.2016
Í dag verður lokað vegna veðurs.
Veðrið kl 08:00 NA 5-15m/sek og töluverð snjókoma og á að bæta í vind þegar líður á daginn.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
Starfsmenn
16.04.2016
Skíðasvæðið verður opið til 1. maí og svo tvær helgar í maí að auki 5-8. maí og 14-15. maí
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 11:00 logn, hiti 5 stig við T-lyftu 300m en frostmark við sleppingu á Búngulyftu 650m og er alskýjað. Færið er troðinn vorsnjór og er töluvert mjúkt við neðstasvæðið en harðara í efrihlutanum. Við sleppingu á Búngulyftu var 2-3 stiga frost í nótt.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
15.04.2016
Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 12:00 logn, frost 1 stig og léttskýjað, færið er unnið harðfenni. Frostið hér í nótt fór í 9 stig þannig að það er harðfenni utanbrautar en lofthiti í dag verður á bilinu 1-4 stig.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
14.04.2016
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 15:00 ANA 5-12m/sek, hiti 1 stig og léttskýjað, færið er vorfæri. Það var um 2 stiga frost í nótt og hitinn í dag verður um 1-3 stiga lofthiti en töluvert heitara í sólinni. Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið troðið að hluta en engin troðsla í efrihlutanum.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
13.04.2016
Kl 17:40 höfum við lokað vegna vinds. Það lítur mjög vel út á morgun opnum kl 14:00
Opið í dag frá kl 14-19, verðrið kl 15:00 vestan 4-14m/sek, hiti 8 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór en það mun mýkjast þegar líður á daginn.
Flott utanbrautarfæri í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
12.04.2016
Opið í dag frá kl 10-13 og svo opnum við á morgun miðvikudaginn 13. apríl kl 14-19
Sjáusmt hress á morgun
Starfsmenn
11.04.2016
Ath. það verður opið á morgun frá kl 10-12
Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 10:00 NW gola, hiti 3 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór,en það er aðeins nýr snjór á svæðinu.
Göngubraut verður tilbúin kl 13:00
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn