07.04.2014
Neðsta-lyfta opnar kl 13:00.
Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 09:30 logn, hiti 4 stig og léttskýjað. Færið er troðinn blautur snjór. Frábært
utanbrautarfæri.
Skoðið þetta flotta myndband sem Gunnlaugur Guðleifsson tók. http://vimeo.com/90800580
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
06.04.2014
Í dag verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 08:00 S-gola, 5 stiga hiti, léttskýjað og sólin að brjótast í gegn.
Færið er troðinn vorsnjór. Tróðum Neðstasvæðið og Hálslyftubakka í gærkveldi, annað er troðið nú í
morgun. Það mun verða mjúkt færi í dag, en ágætis færi fyrir utanbrautarskíðun.
Skarðsdalurinn er búinn að vera aldeilis flottur síðustu 12 daga logn, sól og snjór í mörgum metrum. Utanbrautar- færi eins og
það gerist bezt. Fallið frá efstu brekkum og niður að skála er 500 metrar.
Skoðið þetta vidio http://vimeo.com/90800580
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
05.04.2014
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið er bara gott gola, hiti 2 stig, heiðríkja og sól.
Sama veður og síðustu 10 daga.
Færið er unnið harðfenni en sólin mun mýkja brekkurnar. Frábært utanbrautarfæri er í vestur fjöllum.
Frábært veður og mjög gott færi fyrir alla
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
04.04.2014
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið er mjög gott vestan gola, 3 stiga hitiog léttskýjað.
Helgarveðrið lítur ljómandi vel út.
Færið er unnin harðfenni en mun mykjast þegar líður á daginn.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
03.04.2014
Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið er frábært logn, hiti 5 stig og heiðríkja og sól.
Færið er mjúkt, það er mikil sólbráð. Færið á T-lyftusvæði er sennilega bezt.
Nú er gott að mæta í Skarðsdalin í sólbað.
Velkomin í fjallið.
Starfsmenn
01.04.2014
Opið í dag frá kl 15-19.
Færið er unnið harðfenni en mýkjist þegar líður á daginn.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
01.04.2014
Opið í dag frá kl 09:00-12:30. Veðrið kl 08:00 logn, frostmark og heiðskírt.
Færið er unnið harðfenni.
Ekki verður opið lengur í dag en til kl 12:30
Opnum á morgun miðvikudaginn 2. apríl kl 15:00. Veðurútlit næstu daga er mjög gott.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn