19.04.2013
Allir á skíði - Sparisjóðurinn býður í fjallið! Þann 21. apríl n.k. er íbúum Fjallabyggðar og gestum boðið
á skíðasvæði Siglfirðinga í Skarðinu frá kl. 14.00 til 20.00. Frítt í lyfturnar, allur skíða- og brettabúnaður
lánaður gjaldfrjálst á meðan birgðir endast. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og drykki á milli 15.00 – 17.00.
Sparisjóður Siglufjarðar – 140 ára.
KL 15:00 veðurblíða WSW gola, hiti 2 stig og léttskýjað. Flott færi og flott veður.
Í dag verður opið frá kl 14-19. Veðrið kl 09:15 WSW gola, hiti 3 stig og heiðskírt. Færið er troðinn nýr snjór og mikið af
honum. Opnum 3 lyftur í dag en allar lyftur verða opnar á morgun.
Það verða uppfærðar upplýsingar um kl 14:00 í dag.
Frábært veður og frábært færi.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
18.04.2013
Í dag verður opið frá kl 16-19. Veðrið kl 13:15 logn, frost 3 stig og léttskýjað, það á að birta til þegar
líður á daginn. Færið er troðin nýr snjór og mikið af honum.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
17.04.2013
Kl 14:00 Það verður opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl 14:00 logn, frost 2 stig og léttskýjað. Færið er troðinn
nýr snjór og mikið af honum þannig að færið er töluvert mjúkt.
Ath. það verður eingöngu Neðsta-lyftan opin.
Það er lokað eins og er, það er verið að athuga aðstæður með tilliti til snjóflóðahættu.
Nýjar upplýsingar um kl 13:00
Umsjónarmaður
16.04.2013
Í dag verður lokað vegna aðstæðna. Það þarf að taka út svæðið með tilliti til snjóflóðahættu,
töluverður snjómokstur er upp á svæðið og mikil troðaravinna er framundan á öllu svæðinu. Veðrið kl 10:30 ANA 10-14m/sek, frost
3 stig og alskýjað.
Stefnum á að opna á morgun þegar allt verður vonandi klárt.
Starfsmenn
15.04.2013
Í dag verður lokað vegna veðurs og aðstæðna.
Veðrið kl 11:30 ANA 8-15m/sek, frost 3 stig og töluverður éljagangur, einnig hefur snjóað mikið á svæðinu og þarf að
skoða snjóalög vel áður en opnað er. Veðurspá er mjög góð næstu daga.
Nýjar upplýsingar á morgun um kl 10:00
Starfsmenn
14.04.2013
Í dag verður lokað vegna veðurs. Veðrið kl 11:00 ANA 15-20m/sek, frost 3 stig og töluverð ofankoma.
Starfsmenn
13.04.2013
KL 09:30 það verður lokað í dag vegna hvassviðris WSW 6-14m/sek á neðra-svæðinu en WSW 8-18m/sek í efri-hlutanum. Það eru
mjög veik snjóalög á svæðinu, það hefur snjóða ca 30-40 cm í nótt og í morgun.
Opnun er í skoðun. Veðrið kl 08:00 SW 4-14m/sek, frost 6 stig og töluverð snjókoma.
Nýjar upplýsingar kl 09:30
Starfsmenn
12.04.2013
Í dag verður opið frá kl 15-19. Veðrið kl 12:30 logn, frost 5 stig, það gengur á með smá éljagangi og svo er heiðskírt
á milli. Færið er troðinn nýr snjór og hefur snjóað ca 20-30 cm á síðasta sólahring. Færið er töluvert
mjúkt. Flott utanbrautar færi.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
11.04.2013
kl 15:40 Eingöngu verður opin neðsta-lyftan í dag. Færi og skyggni er ekki gott á T-lyftusvæði, gengur á með dimmum
éljum.
Í dag verður opið frá kl 16-19. veðrið kl 15:00 NA 3-7m/sek, frost 8 stig, smá éljagangur af og til. Færið er troðinn nýr
snjór, það er töluvert mjúkt færi.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
10.04.2013
Í dag verður lokað vegna hvassviðris. Veðrið kl 13:00 ANA 8-16m/sek, frost 6 stig og töluverður skafrenningur.
Staðan verður tekin kl 10:00 í fyrramálið.
Starfsmenn