06.01.2009
Komið á Siglufjörð í alpana, það er enginn kreppa á skíðasvæðinu á Siglufirði, opið alla daga vikunar, við
bjóðum upp á 2,3 km af brekkum við allra hæfi, góðir gisti og veitingastaðir, við erum að sjálfsögðu að skíða
á náttúrulegum snjó.
Kveðja frá starfsmönnum skíðasvæðisins á Siglufirði
06.01.2009
Opið verður frá kl 16-20, veðrið er mjög gott logn, -2c° og skýjað. færið er troðið harðfenni í bland við nýjan
snjó gott færi fyrir alla.
Allar lyftur opnar
Velkomin í fjallið starfsmenn
05.01.2009
Opið verður í dag frá kl 11-16 veðrið er N-gola, -1c° og snjókoma á neðrasvæði en á efrasvæði er N-5-10 -3c° og
snjókoma. Gott að fá snjóinn. Færið er harðfenni og ný fallin snjór.
Verðum með opið á morgun 6. janúar frá kl 16-20.
Starfsmenn
04.01.2009
Opið verður í dag frá kl 11-17, veðrið er mjög gott S-gola, -1c° og heiðskírt, færið er troðið harðfenni ágætis
færi fyrir alla þegar búið er að troða svæðið, ég vil biðja skíðafólk að fara varlega á
neðstasvæðinu og skíða eftir merktum brautum.
Allar lyftur opnar
Velkomin í fjallið starfsmenn
03.01.2009
Opið verður í dag frá kl 11-17, veðrið í fjallinu er logn, +2c° við neðstasvæðið en 0c° á efrasvæði,
lítilsháttar rigning er á svæðinu. Færið er troðin blautur snjór.
Allar lyftur opnar, ég bið gesti að fara varlega á neðstasvæðinu það hefur tekið töluvert upp en ágætis
snjóalög eru á efrasvæði.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
02.01.2009
Opið verður frá kl 14-20, veðrið í fjallinu er mjög gott, logn +4c° á neðstasvæði en +2c° á efstasvæði,
færið er troðinn blautur snjór.
Allar lyftur opnar, það verður að fara varlega á neðstasvæðinu og skíða í troðnum brautum.
Gleðilegt ár og velkomin í fjallið
Starfsmenn
01.01.2009
Starfsmenn skíðasvæðisins óska öllum íbúum Fjallabyggðar og öllum þeim fjölmörgu gestum sem heimsótt hafa
skíðasvæðið á árinu 2008 gleðilegs árs og sjáumst hress á nýju ári. Þess má geta að gestir
skíðasvæðisins á árinu 2008 eða þá tvö mánuði sem Valló ehf hefur rekið svæðið eru vel á annað
þúsund.
Við opnum á morgun föstudaginn 2. janúar kl 14:00-20:00
Nánari upplýsingar í síma 878-3399 og á heimasíðu skard.fjallabyggd.is