Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 12:00 WNW 2-6m/sek, frost 3 stig og léttskýjað, færið er unnið harðfenni, við opnum til að byrja með Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið, erum með Búngusvæðið í skoðun, vindur þar er vestan 8-15m/sek.
Neðstasvæði: Bakki meðfram lyftu inni, Vegur að Rjúpnabakka góður og Rjúpnabakki inni. T-lyftusvæði: Bakki meðfram lyftu inni, Vegur að Hólabraut góður og Þvergil með Bobbbraut og Palla tilbúið.
Göngubraut í Skarðsdalsbotni ca 1,5 km verður til kl 16:00
Aðsókn á skíðasvæði var mjög góð í febrúar um 3200 manns sem komu á svæðið og er það met í febrúar-mánuði síðasliðin 3 ár og eru opnunardagar komnir í 66 og en er eftir 2 mánuðir af síðavertíðinni.
Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is
http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is http://www.textavarp.is/544
Starfsfólk