Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið er logn, frost um 5 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór það hefur snjóað aðeins hjá okkur svo að það er nýr snjór í öllum brekkum sem troðnar eru, mjög gott færi fyrir alla og allar lyftur keyrðar. Meiriháttar færi og veður í dag og er veðurútlit mjög gott næstu daga.
Það er göngubraut í Skarðsdalsbotni að vestan ca 2 km
Brekkur sem eru inn í dag eru T-brekka að hluta, Stálmasturbrekka, Þvergilið, brekka fyrir ofan Skíðaskála og það eru allar brekkur inn á Búngusvæðinu. Svæðið er búið að vera opið í 40 dag frá 5. desember.
Velkomin í fjallið starfsmenn