Kl 12:15 Allir á skíði í dag frítt í fjallið og kakó fyrir alla, það er að fjölga í fjallinu. Gott veður og gott færi.
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 11:45 NA 4-7m/sek, frostmark og smá éljagangur. Neðsta-lyfta og T-lyfta opnar.
SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD - komum börnunum í snjóinn - sunnudagurinn 22. janúar 2012 Frítt fyrir alla
Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi „World Snow Day“ þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á nýjungum í því augnamiði að hvetja börn til skíðaiðkunar. Dagurinn er hluti hvatningarátaks FIS „Bring children to the snow“ sem staðið hefur frá árinu 2007.
Stjórn Skíðasambands Íslands hefur ákveðið að svara kalli FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og skíðasvæðanna. Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga bönum og unglingum sem heimsækja fjöllin.
Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin og njóta þar hollrar útivstar í hreinleika fjallanna.
Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum ókeypis á skíði þennan dag.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn