Opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 08:00 logn, frost 6 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór, en það er lítill snjór og geta verið steinar í brekkum svo farið varlega.
En það er mjög gott færi og verður mjög gott útivistarveður í dag.
Klárar skíðaleiðir í dag eru Neðstabrekkan og Æfintýraleið, T-lyftubrekkan og er leið út í Þvergil sem er troðin að t-lyftusvæði.
Vetrarkort margborgar sig
Fullorðnir kr 22.500.-
Háskóla/framhaldsnemar kr 13.500.-
Börn 9-17 ára kr 9.000.-
Velkomin í Skarðsdalinn