Það rætist nokkuð vel úr deginum í gær, það var opið frá kl 13-20 í þokkalegu veðri og voru gestir um 500 og þakkar starfsfólk öll þeim fjölmörgu sem komu á svæði fyrir komuna, sjáumst hress á morgun. Nýjar upplýsingar kl 08:30 á morgun.
Starfsfólk.
Skíðasvæðið verður opið, við opnum, veðrið kl 13:00 austan 4-10m/sek um frostmark og léttskýjað, færið er unnið harðfenni og markar mjög vel í þannig að færið er mjög gott fyrir alla, allar brekkur tilbúnar.
Upplýsingar um stöðu eftir svæðum:
Neðstasvæði: Bakki meðfram lyftu inni, Vegur að Rjúpnabakka góður og Rjúpnabakki inni. T-lyftusvæði: Bakki meðfram lyftu inni, Vegur að Hólabraut góður og Þvergil með Bobbbraut og Palla tilbúið, Búngusvæði: Búngubakki inni, Innrileið inni Stálmasturbakki inni og tengileiðir frá Búngusvæði að T-lyftusvæði góðar.
Göngubraut í Skarðsdalsbotni ca 1,5 km með spori verður til kl 16:00
Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is
http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is http://www.textavarp.is/544
Velkomin í fjallið starfsfólk