Miðvikudaginnn 13. febrúar opið kl 15-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 14:30 NA 3-6m/sek, hiti 2 stig og léttskýjað. Færið er unnið harðfenni.


 Minni á skiptihelgi vetrarkortshafa 16 og 17. febrúar. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Skarðsdal Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi. (16 og 17 febrúar) Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skiðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða. Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja nágrananna. Þetta er þriðja skiptihelgin af 5 en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor.





Velkomin í Skarðsdalinn


Starfsmenn