Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 17:20 WSW 2-8m/sek, frost 2. stig og léttskýjað, færið er troðinn nýr snjór. Búngusvæðið verður ekki opið í dag, þar er of hvasst.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði kl 14:00 3. km að lengd.
Upplýsingar um stöðu svæða: Neðstasvæði er 70-110 cm snjór, T-lyftusvæði 100-140 cm snjór og á Búngusvæði er 150-350 cm snjór.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
Velkomin á skíði í dag starfsmenn