Frábært veður og frábært færi.
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 09:15 austan gola, frost 3 stig, léttskýjað og sólin aðeins að sýna sig. Færið er troðinn harðpakkaður nýr snjór. Allt troðið í gærkveldi.
Öll svæði opin í dag. Göngubraut tilbúinn upp á Súlum kl 12:00
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
Ps. það verður stórsvigsbraut í Búngubakka. Búið að troða Miðbakka á Búngusvæði svo það er gott pláss fyrir alla.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/