Siglfirslu alparnir eru að verða eitt aðal aðdráttaraflið yfir veturinn fyrir ferðafólki og lætur nærri að 40% af gestum komi af Eyjafjarðarsvæðinu, þökk sé Héðinsfjarðargöngum og er stöðug aukning ár frá ári af gestum frá suðvestur horninu.
Það skiptir miklu máli að Bláfjöll séu keyrð af krafti þar er útúngunarstöð skíðamanna sem streyma síðan út á land í framtíðinni og er skíðasvæðið í Fjallabyggð mjög góður kostur enda með mjög fjölbreytt skíðasvæði og er í Fjallabyggð margir góðir veitingastaðir og nægt gistirými sem getur hýst allt að 400 manns.
Meðal opnun á skíðasvæðinu síðastliðinn 3 ár eru um 110 dagar enda er svæðið opið að öllu jöfnu frá byrjun nóvember eða desember til mánaðamóta apríl –maí, gestir eru að meðaltali á sama tíma um 11. Þúsund og þegar þetta er skrifað eru gestir að smella í 10. Þúsund og en eru eftir stórir dagar eins og páskar, markvist hefur verið unnið að markaðsátaki með svæðið og er það greinilega að skila sér í auknum umsvifum í Fjallabyggð.
Skíðafjör í siglfirsku ölpunum, við tökum vel á móti þér.
Egill Rögnvaldsson