Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 10:00 vestan gola, frost 2 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni í bland við nýjan snjó og það markar mjög vel í fyrir alla, s s frábært veður, frábært færi og frábær dalur.
Staða á svæðum:
Neðstasvæði: Bakki meðfram lyftu inni, Vegur að Rjúpnabakka góður og Rjúpnabakki inni. T-lyftusvæði: Bakki meðfram lyftu inni, Vegur að Hólabraut góður og Þvergil með Bobbbraut og Palla tilbúið, Búngusvæði: Búngubakki inni, Innrileið inni Stálmasturbakki inni og tengileiðir frá Búngusvæði að T-lyftusvæði góðar.
Göngubraut í Skarðsdalsbotni ca 1,5 km með spori.
Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is
http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is http://www.textavarp.is/544
Velkomin í fjallið starfsfólk