15.05.2016
Innilegt þakklæti fyrir veturinn en í fjallið komu 10 þúsund manns og opnunardagar voru 104 og takk fyrir mætinguna um Hvítasunnuna, Skarðsrennslið verður að ári 13. maí og keppt verður í flokkum 21-30 ára, 31-40 ára, 41-50 ára og 51 ára og eldri og að sjálfsögðu konur og karlar.
Sjáumst hress næsta vetur
Fjallamenn
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:30 er austan gola, hiti 7 stig og heiðskírt. Færið er vorfæri og er töluvert mjúkt í öllum brekkum. Takið daginn snemma gæti farið að vinda af SW þegar líður á daginn.
Störtum Skarðsrennsli kl 13:00
Sjáumst hress
Fjallamenn
14.05.2016
Kl 13:00 Lokað vegna hvassviðris, reynum á morgun hvítasunnudag.
Verðið er SW 10-20 m/sek
Opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 10:30 WSW 6-14m/sek, hiti 3 stig og er alskýjað en samkvæmt veðurspá að að birta til í dag. Færið er vorfæri töluvert mjúkt.
Í dag fer fram Skarðsrennsli, start kl 13:00, skráning á staðnum og eru veitingar við Skíðaskálan. Skráningagjald er kr 4.000.- 18 ára og eldri, verðlaun eru vetrarkort og ýmislegt frá Fjallakofanum.
Styrtaraðili er Réttingaverkstæði Jóa
Það sem er troðið er í dag Neðstasvæði, T-lyftusvæðið og Miðbakka frá Búngutopp að Hálslyftu en í þeim bakka fer fram rennslið.
Velkomin í Skarðsdalinn
Fjallamenn
09.05.2016
Svæðið verður lokað frá mánudeginum 9. maí -föstudagsins 13. maí.
Opnum svæðið laugardaginn 14. maí og sunnudaginn 15. maí sem eru loka dagar á þessum vetri.
Skarðsrennsli fer fram laugardaginn 14. maí start kl 13:00 3 km rennsli (risasvig) grill og húllum hæ.
Keppt er í flokkum 18 ára og eldri og 10-18 ára
Vegleg verðlaun
Réttinagverkstæði Jóa og Fjallakofinn
Sjáumst hress
08.05.2016
Ath. að gefnu tilefni gilda ekki Norðurlandskortin í maí, þau giltu til 30. apríl
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er logn, hiti 2 stig og léttskýjað, færið er troðinn nýr snjór og er hann rakur. Það er troðið við Neðstulyftu og T-lyftu og er miðbakkinn troðinn á Búngusvæði og leið niður að Hálslyftu. Búngubakkinn og Hálslyftubakki er ótroðið.
!!Ath. svæðið norðan/hægramegin við Búngulyftu er lokað vegna veikra snjólaga og er skilti við sleppingu á Búngulyftu!!
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
07.05.2016
KL 13 opið/open veðrið er logn, hiti 4 stig og það er að birta til. Það er töluverður snjór á svæðinu.
ATH opnum eingöngu 2 lyftur.
Í dag fer fram Fjallaskíðamótið Super Troll start kl 14:00 og má reikna með að keppendur verði komnir í mark á bilinu 15:30-17:00
Velkomin á svæðið
Starfsmenn
06.05.2016
Það verður lokað í dag, það er verið að moka til snjó en það hefur snjóað ca 100 sm síðustu 9 daga sem er mesta snjódýpt á svæðinu í vetur. Snjódýpt er um 200sm á ákveðnum stöðum nú.
Veðirð kl 11:40 er nA 3-7m/sek, hiti 1 stig og slydda og snjókoma.
Á morgun opnum við kl 10- en á morgun fer fram Fjallaskíðamótið Super Troll og er veðurútlit gott á morgun og skyggni ætti að verð nokkuð gott á morgun, en sunnudagurinn lítur mjög vel út.
Sjáumst á morgun og verða nýjar upplýsingar uppfærðar á morgun kl 08:00
Starfsmenn
05.05.2016
Það verður lokað í dag. Það verður opið um helgina, gott veðurútlit um helgina.
Nánari upplýsingar á morgun.
Fjallaskíðamótið Super Troll fer fram á laugardaginn 7. maí
Starfsmenn
02.05.2016
Svæðið verður lokað frá 2-4 maí en opnum aftur 5-8. maí en laugardaginn 7. maí fer fram Super Troll Fjallaskíðamótið.
Minni á Skarðsrennslið 14. maí, 3 km rennsli og grill og húllum hæ á eftir.
Nýjar upplýsingar á fimmtudaginn 5. maí
Starfsmenn
01.05.2016
!!Til hamingju með daginn!!
Opið í dag frá kl 10-15, veðrið er bara gott, logn, hiti 3 stig og sól, færið er troðinn nýr blautur snjór og það sem er troðið er Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið, Hálslyftusvæðið og Búngusvæðið er ótroðið. Utanbrautarfærið er guðdómlegt.
Takið daginn snemma, það skiptir máli.
Sjáumst hress og kát.
Fjallamenn
30.04.2016
Það verður lokað í dag veðrið er snjókoma, slydda, rigning og þoka.
Það verður gott veður á morgun og verður opið á morgun frá kl 10-15 og mætið snemma í bjart og fallegt veður í glænýjan snjó, það verður ekki mikið troðið.
Sjáumst hress
Starfsmenn